Hátíð hirðarinnar
Halló hér

markaðsráðgjöf
Hátíð Hirðarinnar var haldin með pompi og prakt á afmælisdegi Svavars Péturs, Prins Póló, 26. apríl 2023. Breiður hópur tónlistarfólks steig á svið til að minnast þessa einstaka manns og leggja grunninn að styrktarsjóði sem hefur það að markmiði að styrkja skapandi ungt fólk.




TVIST hannaði sjónræna umgjörð í anda Prinsins. Svavar Pétur var með eindæmum fjölhæfur listamaður og útskrifaður grafískur hönnuður. Það var því forvitnileg áskorun að halda nafni hans á lofti án þess að afrita beint hans einstaka handbragð og þynna þar með út höfundarverkið.

