Grilljón ástæður
Fersk hráefni í bland við óbilandi bjartsýni og leikgleði, sumarherferð Krónunnar

grafísk hönnun
hugmyndavinna
textasmíði
framleiðsla
hreyfigrafík
Sumarherferð Krónunnar
Jafnt í logni sem lægð má alltaf finna ástæðu til að grilla, svo lengi sem grillviljinn er fyrir hendi. Þetta er ekki aðeins eitt af aðaleinkennum íslensku þjóðarsálarinnar heldur einnig meginstefið í sumarherferð Krónunnar í ár.
Okkar hlutverk í grillpartíinu fólst einkum í að leggja höfuð í marineringu og reiða svo fram vel kryddaða herferðarlínu og eldhressa hönnun. Og reyna að telja upp að grilljón.
Í heimi Krónunnar eru matvæli upphaf og endir alls og því var upplagt að vefa myndskreytingar í kringum góðkunningja úr hillurrekkum stórmarkaðanna.