Græn lán Ergo
Hagstæð lán fyrir fólk sem vill standa sig vel

hugmyndavinna
grafísk hönnun
textasmíði
Ertu með eitthvað grænt í gangi?
Ergo setti sér það markmið að vera hreyfiafl til góðra verka og hóf að bjóða sérstaka græna fjármögnun á betri kjörum fyrir allan græna pakkann — rafbíl, rafhjól og hleðslustöðvar. Til að vekja máls á því römmuðum við inn þá hugsun að þeir sem reiða sig á vistvænni ferðamáta eigi að vera stoltir af því. Og lékum okkur í stærsta bílakjallara landsins.



Ein mesta breytingin sem fylgir því að skipta yfir í rafbíl er að þurfa að stinga bílnum í samband til að hlaða og losna við dælurbyssurnar á missnyrtilegum bensínstöðvum. Hleðslusnúrurnar eru oft skemmtilega litríkar og fengu að njóta sín í herferð Ergo.

